Tvær manneskjur með nikótínlausan LIO Staut

Hvernig hætti ég að veipa?

Hreiðar Marinósson

Margir sem ákveða að hætta að veipa komast að því að nikótínið er bara hluti af vandamálinu. Hinn hlutinn er vaninn: að taka rafrettuna upp í bílnum, í pásunni eða með kaffinu. Í þessari grein förum við yfir hvað gott er að hafa í huga og hvar hægt er að fá stuðning.

Þekktu vanann þinn

Fyrsta skrefið er að átta sig á hvenær og hvers vegna þú veipar. Prófaðu að skrifa niður í nokkra daga hvenær þú grípur í rafrettuna. Er það eftir mat, í stressi, í félagsskap eða bara af gömlum vana?

Þegar þú þekkir mynstrið verður auðveldara að skipuleggja hvað þú gerir í staðinn á þessum stundum.

Undirbúðu þig

  • Veldu dag. Margir finna að það hjálpar að ákveða dagsetningu fyrirfram.
  • Segðu öðrum frá. Fjölskylda og vinir geta stutt þig, og það er auðveldara þegar þau vita af því.
  • Losaðu þig við vökva og búnað. Því minna sem er við höndina, því færri freistingar.
  • Hugsaðu um aðstæður. Hvað ætlar þú að gera í pásunni, í bílnum eða með kaffinu?

Hvað kemur í stað vanans?

Fyrir suma er það að halda höndunum uppteknum og hafa eitthvað við munninn stór hluti af venjunni. Þess vegna leita margir að einhverju sem kemur í stað handahreyfingarinnar, til dæmis tyggjói, vatnsflösku eða göngutúr.

LIO Stauturinn er einn slíkur valkostur. Hann er nikótínlaus og reyklaus, það þarf ekki að hlaða hann og bragðið kemur úr náttúrulegum bragðefnum. Þú dregur inn loft með bragði, þannig að handahreyfingin og vaninn haldast, en án nikótíns.

Stauturinn er ekki lyf eða meðferð. Hann er valkostur fyrir þá sem vilja halda í vanann án nikótíns.

Fáðu stuðning

Það er engin skömm að þiggja aðstoð. Á Íslandi býðst ókeypis ráðgjöf fyrir þá sem vilja hætta að nota tóbak eða nikótín:

  • Reyksíminn: 800 6030
  • Vefurinn reyklaus.is
  • Heilsugæslan þín og lyfjafræðingar geta líka ráðlagt um næstu skref.

Gefðu þér tíma

Margir þurfa nokkrar tilraunir áður en þeim tekst að hætta. Ef þú dettur í það aftur er það ekki ósigur, heldur tækifæri til að læra hvað þú þarft næst.

Viltu prófa nikótínlausan valkost til að hafa við höndina? Skoðaðu LIO startpakkana.

Aftur í greinar