Fólk með nikótínlausan LIO Staut

Hvað kostar að reykja eða veipa á ári?

Hreiðar Marinósson

Einn pakki hér og ein flaska þar virðist ekki mikið. En þegar þú leggur saman kostnaðinn yfir heilt ár verða tölurnar oft hærri en fólk býst við. Hér förum við yfir hvað sígarettur, veip og nikótínpúðar kosta að jafnaði, og hvernig þú reiknar út þinn eigin kostnað.

Sígarettur

Miðað við að pakki með 20 sígarettum kosti um 2.200 kr.:

  • Hálfur pakki á dag: 1.100 kr. á dag, eða um 401.500 kr. á ári.
  • Heill pakki á dag: 2.200 kr. á dag, eða um 803.000 kr. á ári.

Veip

Algengt verð á 10 ml af veipvökva í íslenskum verslunum er um 1.400 kr. Ef þú notar 5 ml á dag kostar það um 700 kr. á dag, eða um 255.500 kr. á ári. Þá er búnaðurinn sjálfur ótalinn: tæki osfr. sem þarf að endurnýja.

Nikótínpúðar

Dós af nikótínpúðum kostar um 849–1.249 kr. Ef dósin er með 20 púðum og þú notar 8 á dag, kostar það um 340–500 kr. á dag, eða um 124.100–182.500 kr. á ári.

Samanburður

Á dag Á mánuði Á ári
Sígarettur, heill pakki 2.200 kr. 66.000 kr. 803.000 kr.
Sígarettur, hálfur pakki 1.100 kr. 33.000 kr. 401.500 kr.
Veip, 5 ml á dag 700 kr. 21.000 kr. 255.500 kr.
Nikótínpúðar, 8 á dag 340–500 kr. 10.200–15.000 kr. 124.100–182.500 kr.
LIO bragðkjarnar 106–177 kr. 3.180–5.310 kr. 38.690–64.605 kr.

Tölurnar eru til viðmiðunar. Mánuður er reiknaður sem 30 dagar.

Reiknaðu þinn eigin kostnað

  1. Hvað kostar pakkinn, flaskan eða dósin sem þú kaupir?
  2. Hversu lengi endist hún hjá þér, í dögum?
  3. Deildu verðinu með dögunum. Þá færðu kostnaðinn á dag.
  4. Margfaldaðu með 365. Þá færðu kostnaðinn á ári.

Dæmi: Ef dós af púðum kostar 1.090 kr. og endist í 2 daga, er það 545 kr. á dag, eða tæplega 199.000 kr. á ári.

Hvað kostar LIO Stauturinn?

LIO Stauturinn er nikótínlaus og reyklaus valkostur fyrir þá sem vilja halda í vanann. Pakki með 3 bragðkjörnum kostar 1.590 kr. og endist í um 9–15 daga, eftir notkun. Það gerir um 106–177 kr. á dag. Sjálfur stauturinn er keyptur einu sinni, til dæmis í startpakka sem kostar 8.990 kr. með 6 bragðkjörnum.

Viltu stuðning við að hætta að nota tóbak eða nikótín? Á reyklaus.is og í Reyksímanum, 800 6030, færðu ókeypis ráðgjöf. Lestu líka greinina okkar Hvernig hætti ég að veipa?

Skoðaðu startpakkana

Heimildir og forsendur

  • Verð á veipvökva: icevape.is, 1.400 kr. fyrir 10 ml.
  • Verð á nikótínpúðum: djakninn.is, 849–1.249 kr. á dós.
  • Gjald á nikótínvörur tók gildi 1. janúar 2025 (Vísir), svo verð getur hækkað.
  • Sígarettur: 2.200 kr. á pakka.
Aftur í greinar